Daginn.... ...þá er ég komin aftur í útlandið. Það er fínt að vera komin aftur, en það var alveg yndislegt að vera heima. Tíminn var alltof fljótur að líða, sem segir kannski það að það var rosalega skemmtilegt hjá mér! JÁ þessum 17 dögum sem ég stoppaði á landinu var margt brallað:
Ég fór á árgangsmót sem haldið var uppá Æðarodda. Það var rosalega gaman að hitta alla aftur.
Heiða hélt uppá afmælið sitt 15 júní, bara fyrir mig!! J Það var rosa fínt, fengum gott að borða og það var spjallað mikið.
Ég fór 2x á djammið í bænum. Fór á ball með Nýdönsk sem var svaka stuð. Hafði ekki farið á ball í mjög langann tíma.
Vann smávegis á Galító í sal sem var alveg ágætt, það verður allavega ekki leiðinlegt að eyða laununum.
Við stelpurnar tókum okkur svo til og fórum saman í fótbolta uppá æfingasvæði. Það var svo gaman. Enda létum við eins og vitleysingar og það má sko segja að við erum ekki í neinni æfingu!!! Hehehe... sprengdum okkur á fyrstu 5 mínútunum! Sorglegt ha?!?
Svo reyndi ég að gera e-h skemmtilegt með Bjarka bró. Fórum nokkrum sinnum í sund og sáum Shrek 3 í bíó, mæli sko með þessari teiknimynd!
Fór svo nokkrum sinnum í heitapottinn í sveitina sem er bara nice!
Verð líka að minnast á það að veðrið var rosalega gott á meðan ég var heima. Sól og blíða, ótrúlegt en satt. Og þegar ég kem svo út er rigning!! Það er búið að rigna síðan ég kom út. Bara í dag er búið að rigna, skína smá sól, rigna meira, það komu svo nokkrar þrumur og eldingar og jááá, rigna enn meira!! Svaka skemmtilegt. Hef ekki farið út úr húsi í dag! Ótrúlegt hvað svona veður getur gert mann latann!! L En ég sakna allra HRIKALEGA mikið og ég get ekki beðið eftir að koma alfarið heim. Það er nú samt ekki mikið eftir af dvöl minni hér í útlandinu þar sem ég kem heim í lok júlí, verð allavega komin heim fyrir versló, svo það er um að gera að fara að plana þá helgi!! J En segjum þetta gott í bili... veit ekkert hvenær ég skrifa færslu næst! Kemur bara allt í ljós J Kveðja Rósa Linda
Hæhæ allir saman... Ég veit að ég hef verið rosalega ömurleg á þessu bloggi núna, ástæðan er einfaldlega sú að ekkert merkilegt hefur gerst hjá mér að undanförnu. En ég er allavega á lífi :) Hef bara verið heima með krakkana seinustu viku og verð einnig með þau þessa viku þar sem það er half-term í skólanum hjá þeim. Veðrið um helgina var frábært og var það notað í botn. Dagurinn í dag var líka góður, sól og mikill hiti. Vona að þetta veður haldist út þessa viku svo ég geti verið úti með krakkana, ekkert gaman að hanga inni allan daginn, og náttla til að wörka tanið!!! ;) ...hehe
Annars er ég að koma heim eftir 4 daga í smá heimsókn og ég hreinlega get ekki beðið. Hlakka svo til að hitta alla. Verð heima frá 8-25 júní, ekki slæmt!! :) Ég verð líklega að vinna e-h á Galító á virku dögunum mínum heima, vinna mér inn smá vasapening svo ég geti keypt mér fleiri föt!! =) Og ég ætla að vera svakalega virk að gera e-h skemmtilegt með honum Bjarka bróðir, af því að ég er besta systir! ;)
Sé sem flesta þegar ég verð á landinu!!! =) Kv Rósa Linda
Hellú... Ég horfði á mjög athyglisverðan þátt í sjónvarpinu í gær. Hann fjallaði um enskan mann sem var 26 ára og var enn hreinn sveinn. Hann var var svo desperate að missa sveindómin að hann fór í kynlífsskóla í Amsterdam, allt er nú til þar! Í þessum skóla voru eldgamlar konur að kenna honum allskonar hluti sem tengdust kynlífi... -Tek það fram að þessar kellur gátu verið ömmur mínar! Það versta við þetta var að hann fékk að æfa sig á þessum konum, mátti snerta þær hvar sem var...mátti bara gera næstum allt við þær og með seinasta kennaranum sínum missti hann sveindóminn!! Seinasta konan vann við það að láta karlmenn missa sveindóminn og fannst ekkert áhugavert við það. Hún sagðist vera glöð yfir að geta hjálpað þessum mönnum! Kommon!!! Finnst þetta frekar sick!!
En út í aðra sálma...fór á deit með Kevin seinasta föstudag(11maí) Við fórum og fengum okkur að borða og fórum svo í bíó á 28 weeks later, sem btw var viðbjóður!! Er enn að hugsa um ógeðslegu atriðin í henni!! Eftir bíó fórum við og fengum okkur einn drykk og svo skutlaði hann mér heim. Þetta var ágætis kveld, en ég veit ekkert hvað verður meira. Kannski fer ég með honum og vinum hans á djammið næstu helgi, en það er ekkert ákveðið.
Ég hef ekkert meira við þessa færslu að bæta!! Ætla bara að kveðja í bili :) -Endilega veriði svona dugleg að komenta eins og á seinustu færslu!
Góða kveldið!! Berglind var hjá mér seinustu helgi og guð hvað mér fannst gaman að hitta hana aftur, fannst bara eins og það væru ár og aldir síðan við sáumst síðast. Skemmtum okkur konunglega! Kíktum 2x á djammið og það var geggjað gaman, það lítur meira segja allt út fyrir það að Rósa Linda sé á leiðinni á annað deit, ekki með Sam heldur með Kevin!! Það verður forvitnilegt að sjá hvað kemur út úr því... hehe! Læt ykkur vita hvernig það fer allt saman!! Auðvitað var svo aðeins kíkt í búðirnar, það fylgir þessu. Ég verslaði smávegis en Berglind tók þetta með trompi þar sem hún er nú alveg að fara heim. Síðan var bara legið í leti og borðað slatta af nammi. Bauð Berglindi svo upp á Mexíkóost og við það verð ég POTTÞÉTT besta vinkona hennar alla ævi!! Samt sorglegt að segja frá því að það tók okkur ekki langan tíma að stúta einum svona osti... Vorum reyndar mjög flottar á því, drukkum Mateus og vorum líka með vínber og Ritzkex... hehe
Annars er ekkert mikið að frétta af mér... er bara að bíða eftir árgangsmótinu, hlakka svo til að komast aðeins heim og hitta alla!! Veit ekki hvað ég mun stoppa lengi á Íslandinu góða,en það fer allt vonandi að koma í ljós. Ég er nú samt með krosslagða fingur um að ég stoppi nú lengur en bara eina helgi!! En jæja hef ekki tíma í meira blogg, er svo upptekin að senda Kevin sms...hehehe
Það er aldeilis, bara komin maí. Mamma og Kolbrún komu til mín 27-30 apríl sem var alveg yndislegt. Það var ótrúlega gaman að fá þær hingað og við skemmtum okkur konunglega. Það var mikið hlegið og haft gaman og auðvitað var verslað. Vil samt meina að þær hafi verslað aðeins of mikið því þær gátu tekið svo lítið af dótinu mínu heim!!! ...heheheh En það verður bara seinni tíma vandamál hvernig ég kem öllu draslinu mínu heim!! Annars var alveg hrikalega erfitt að kveðja þær á mánudagskveldið, langaði bara að fara með þeim heim ef ég á að vera hreinskilin!! En það er ekki svo langt í árgangsmótið! híhí...
Berglind er svo að koma til mín í kveld og verður hún hér fram á mánudag, sem er bara frábært. Við ætlum að taka smá djamm á þetta, það er ekki annað hægt!! Svo ef veðrið verður eins gott og það hefur verið seinustu daga er ekki annað hægt en að fara í smá sólbað og viðhalda taninu!! (Veðrið er mega gott núna, var í allan dag í sólbaði) Og kannski verður kíkt í e-h búðir, en ég ætla ekki að kaupa neitt, eða ætla allavega að reyna það! En það getur verið erfiðara en að segja það!! En ég kveð ykkur í bili með sól í hjarta
Þá er dagurinn runninn upp!! Mamma og Kolbrún eru að koma til mín í kveld og ég get bara ekki beðið. Er svo spennt að hitta þær og sýna þeim aðeins þessa "fallegu" borg sem ég bý í!! En það verður verslað, það er ekki spurning :)
Annars er vikan hjá mér búin að vera alveg ágæt. Ég og Sigurbjörg erum búnar að vera tvær heima því greyið er með Chickenpops (hlaupabóluna á góðri íslensku) Og við erum búnar að perla af okkur hendurnar...!
Já eitt enn sem ég vill koma á framfæri hér!!! Það er ÓGEÐSLEGA GOTT veður hjá mér! :) Alveg yndislegt og það verður miklu betra þegar líða fer á sumarið!! vúhú...
Bæbæ elskurnar ;) Rósa sem er að deyja úr spenningi!!
Páskarnir eru á enda og sama rútínan er komin í gang þar sem krakkarnir voru að byrja í skólanum í dag. Páskarnir hjá mér voru bara nokkuð góðir, allavega gerði ég þónokkuð. Ég fór til Blackpool í sundlaugargarð, skoðaði York, Sam býr þar, en ég hitti hann ekki. Fór í smá verslunarferð með Gunnsu og síðan fórum við 2x á stað sem heitir Chester Oaks, en þar er hægt að kaupa merkjavörur á mun lægra verði en gengur og gerist. Einnig var smá sólbaðssession tekið, en veðrið hér er yndislegt, ekki hægt að segja annað!!! =) Það er reyndar ekki alveg að gera góða hluti núna þar sem það er engin sól, sá fyrir mér að ég lægi í sólbaði í allan dag, samt er alveg rosalega hlýtt.
Annars eru 7 ár síðan ég fermdist, finnst það alveg ótrúlegt. Tíminn er svo svakalega fljótur að líða.
Man ekki hvað ég ætlaði að skrifa meira, en bið bara að heilsa öllum ;)
*Get ekki beðið eftir mömmu og Kolbrúnu, en þær koma eftir 11 daga!!
Það er 1. apríl í dag, það hefur nú ekki verið mikið um hrekki hér í útlandinu, aðeins nokkrir um kóngulær. Annars er Berglind farin, er strax farin að sakna hennar L Ég verð bara að reyna að gera gott úr þessu, og það er líka gaman að hugsa til þess að þegar við hittumst næst mun það verða yndislegt. Vonandi er þetta fínn bær sem hún flutti í, vonandi betri en Manchester, ég trúi varla öðru!! J Veðrið hér er að gera góða hluti, sól, hiti og smá gola. Er búnað sitja úti í garði með maurunum í dag og lesa, ekkert smá þægilegt. Hvernig ætli þetta verði þegar líður á sumarið??? Fékk svo pakka frá familíunni í dag. Varð ekkert smá ánægð. Hann innihélt harðfisk, pipar- og mexíkóost, fullt af nammi, myndir frá Bjarka og 2 stk páskaegg - veit ekki alveg hvernig ég fer af því að klára þau, þar sem núna á ég 3!! Hef aldrei fengið svona mörg páskaegg í einu. Og svo fékk ég nýja saumamynd frá Svönu, mjög ánægð með hana. J - Get ekki annað sagt en að þessi pakki made my day!!!! Svo er bara að vona að apríl verði fljótur að líða, get hreinlega ekki beðið eftir mömmu og Kolbrúnu. Á eftir að sleikja þær aðeins upp J
Finnst samt rosalega skrítið að hugsa til þess að ég verði ekki heima yfir páskana. En e-h tímann er allt fyrst, er þaggi?? Ætla bara að kveðja í bili, vonast til að fá sem flest comment á þessa færslu!! J Love you all – Rósa Linda Manchestermær
Það er ekkert smá gott veður hér í útlandinu núna! Það er svakalegur hiti og logn, ekki slæmt. Svo eru veðurspár að segja að sumarið í ár eigi að vera það langbesta í 40-50 ár!! Það verður bara sweet
Annars var seinasta helgi fín, fórum á skemmtistað sem heitir Pure, ekkert smá stór staður og það var bannað að reykja inná honum, sem er náttúrulega bara gott. enda fann maður mikin mun daginn eftir.
Svo er ég búin að vera veik!! :( Fékk allt í einu svaka hausverk, hálsbólgu, hita og beinverki á mánudaginn og var allan þriðjudaginn líka slöpp, lá uppí rúmi allan þriðjudaginn, heví glatað því það var svo gott veður úti!!!! En ég er öll að koma til núna, örlítil hálsbólga enn ekkert til að væla yfir!
Svo er Berglind að flytja næsta laugardag!!!! OMG hvað ég kvíði fyrir því! Væri sko alveg til í að hún væri bara ekkert að flytja! Ætla til hennar á föstudaginn og vera hjá henni þar til hún fer...
Það er e-h fokk á þessu bloggar.is drasli...eins og þið sjáið kannski á seinustu færslu...mjög asnalegt..en er farin að sækja krakkana í skólann! :)
Vóó mars er að verða búin, sem er náttúrulega ekkert nema gott mál!! Páskarnir á næsta leiti og ég er sko búin að fá páskaegg!! ..vúhú!! Það verður ekki leiðinlegt að jappla á því hér í útlandinu! :)
Annars ætlar Berglind að kíkja á mig í dag, ætlar að lita á mér hárið og svona, þurfum aðeins að pæjast fyrir morgundaginn, ætlum að gera heiðarlega tilraun til að fara á djammið! ....hehe =) Þarf aðeins að passa á morgun, en það er ekkert til að tala um, nokkrar klst. Eftir það verður drifið sig heim til Berglindar og gert sig klára fyrir almennilegt djamm!! *Berglind: Við verðum að klára Mikka vin okkar og aðeins að kíkja á þennan tópaspela okkar!!
Svo ætla mamma og Kolbrún að kíkja í heimsókn til mín 27-30 apríl, það verður sko ekki leiðinlegt. Við mæðgurnar saman heila helgi, bara að versla, eða kannski bara þær. Verð að sleikja mömmu BESTU aðeins upp til að ég fái nú e-h!! ;)